Miracle First Line Support
Miracle First Line Support er þjónusta sem miðar að því að veita aðgang að þjónustu Miracle allan sólahringinn allt árið um kring. Starfsemi margra fyrirtækja eða þjónusta þarf að vera aðgengileg allan sólarhringinn með tilheyrandi álagi á starsfólk og búnað upplýsinatæknideilda. Mörg nota Miracle 24/7 þjónustuna til að lágmarka rekstrarfrávik og um leið draga úr álagi á starfsfólk.
Þjónustusamningar
Miracle First Line Support er hægt að sérsníða að þörfum viðskiptavina. Fyrirtæki eru mismunandi og þarfirnar líka og því leggjum við okkur fram við að þjóna fyrirtækjum á þeirra forsendum. Hjá okkur starfa eingöngu reyndir starfsmenn sem að auki hafa skapað sér orð fyrir afburðar frammistöðu. Ögrandi verkefni og kröfuharðir viðskiptavinir tryggja að starfsmenn okkar verða ávallt meðal þeirra bestu í faginu. Við viljum aðeins allra besta fólkið og bjóðum viðskiptavinum okkar aðeins það besta.
- Helstu þættir
- Samvinna er lykilhugtak
- Forsendur verkkaupa hafðar að leiðarljósi
- Tryggir verkkaupa stöðugt aðgengi að þekkingu
- Við kunnum okkar fag
Viðaukasamningar
Fyrirtæki geta tryggt sér aðgengi að sérþekkingu starfsmanna Miracle utan hefðbundins opnunartíma. Kröfur um uppitíma og aðgengi eru vaxandi þáttur í starfsemi fyrirtækja og snúið að tryggja sig í þeim efnum. Viðaukasamningur Miracle tryggir eins og fram hefur komið aðgengi og er til þess fallinn að styðja við markmið fyrirtækja með hvað aðgengi og uppitíma varðar.
- Helstu þættir
- Aðgengi sem aldrei sefur og fer aldrei í frí
- Alltaf til reiðu með stuttum fyrirvara
- 24/7 rekstur æ algengari krafa
- Hagkvæm leið við að tryggja aðgengi að þekkingu
RemoteDBA
Aðgengi og uppitími er lykilatriði í rekstri. Rekstrarfrávik kosta tíma og peninga og er aðkoma okkar að rekstri gagnagrunna og kerfa miðuð við að hámarka uppitíma og aðgengi með fyrirbyggjandi aðgerðum.
- Helstu þættir
- Flýtir fyrir
- Vandamál greind og leyst, enginn dýrmætur tími glatast í umferðinni
- Eykur hagræði