Kerfisúttektir
Kerfisúttektir miða við að starfsmenn Miracle taki að sér að greina umhverfi og gefa góð ráð um hvernig hægt er að ná markmiðum sínum hvað tíma, aðgengi, uppitíma, kostnað, umfang, öryggi og fleira. Ef markmiðin eru ekki til staðar, getum við hjálpað til með það líka. Við getum tekið að okkur að greina einstaka kerfi, eða umhverfið í heild sinni. Nálgunin getur verið miðuð við högun, notkun, öryggi, útfærslu eða hvað sem er.
- Helstu þættir
- Fagmenn með langa reynslu miðla henni
- Rétt högun lágmarkar áhættu
- Markmiðasetning lykilatriði
- Úttekt gerð á forsendum verkkaupa
Eftirlit
Við getum tekið að okkur að fylgjast með gagnagrunnum fyrirtækja 24/7 þar sem að hámarksuppitími er nauðsynlegur fyrir fyrirtækið. Ef þörf er á að bregðast við vandamálum látum við vita og er það í höndum viðskiptavinarins að ákveða hvort hann vilji bregðast við sjálfur eða fá okkur til verksins.
- Helstu þættir
- Eftirlit alla daga, allar nætur - allt árið um kring
- Rekstrarfrávik greind um leið og þau verða
- Skiptir sköpum að greina frávik í tíma
Rekstur
Miracle sér í dag um rekstur fjölda gagnagrunna fyrir bæði stór og lítil fyrirtæki. Með því tryggja fyrirtækin sér aðgang að sérhæfðum sérfræðingum og hagræða í leiðinni. Sérþekking starfsmanna kemur að góðum notum og rekstrarhagsmunum skjólstæðinga okkar er best varið með aðkomu starfsmanna Miracle.
- Helstu þættir
- Fagmenn með mikla reynslu
- Fyrirbyggjandi aðgerðir koma í veg fyrir rekstrarfrávik
- Skilvirkni og áframhaldandi rekstur er forsenda okkar
- Við gerum gagn og höfum gaman af
Aðstoð við tölvudeild
Aðstoð við tölvudeildir fyrirtækja getur auðveldað rekstur tölvukerfa að því marki að alltaf er hægt að fá inn sérfræðinga sem geta stutt við bakið á starfsmönnum tölvudeilda. Aðstoð við tölvudeildir er eins og aukastarfsmaður sem verður ekki veikur, fer ekki í sumarfrí og þarf ekki að hugsa um að viðalda þekkingarstigi.
- Helstu þættir
- Tímabundnu álagi mætt með hagkvæmum leiðum
- Aðkoma fagmanna þegar þörf er á
- Aðstoð mótuð að forsendum verkkaupa
Öryggisúttekt
Öryggismál eru jafnan í brennidepli. Fyrirtæki þurfa að ganga úr skugga um að öryggismál sín séu í lagi. Öryggismál og útfærsla þarf að huga að víða og er mjög algengt að fyrirtæki skilji að útfærslu öryggismála sinna eða almennann rekstur slíkra mála og því að sannreyna að þessi mál séu í lagi. Öryggismál eiga að vera órjúfanlegur hluti af öllum tæknimálum og hafa Miracle starfsmenn mikla reynslu af slíkum málum.
- Helstu þættir
- Betur sjá augu en auga
- Öryggi er ferli, ekki niðurstaða
- Yfirsýn og þekking skiptir sköpum
- Öryggismálum er best fyrirkomið sem fyrirbyggjandi aðgerðum