Oracle

Miracle býður fjölda staðlaðra Oracle námskeiða, ss. DBA, Backup & recovery, Tuning, PL/SQL, Intro to Oracle, Discoverer ofl. ofl.  Hægt er að fá öll okkar námskeið sérsniðin að hverju fyrirtæki til að tryggja að tími starfsmanna viðskiptavina okkar nýtist sem best.  Kennarar á námskeiðunum eru margir af færustu Oracle sérfræðingum á landinu og þeir búa yfir mikilli “hands-on” reynslu af því efni sem farið er í gegnum á námskeiðunum.  Við ábyrgjumst 100% ánægju viðskiptavina okkar. Ef nemendur eru ekki 100% ánægðir með námskeið Miracle fá þeir það endurgreitt !

Microsoft

Miracle hefur tekið höndum saman með iSoft sem hefur verið leiðandi tölvuskóli á sviði Microsoft námskeiða.   Miracle og iSoft munu bjóða viðskiptavinum sínum uppá fjölbreytt úrval SQL Server námskeiða:

  • Uppfærslunámskeið úr SQL Server 2000 í SQL Server 2005
  • Ný námskeið í SQL Server 2005
  • Reporting Services
  • Analysis Services

Masterclass

Við vitum að tími þinn er dýrmætur. Af þeirri ástæðu höfum einsett okkur að hafa eingöngu heimsklassa kennara á Miracle Masterclass námskeiðunum til þess að hámarka fjárfestingu þína í menntun. Á þann hátt komumst við yfir meira efni á skemmri tíma og tryggjum að þú öðlist bæði djúpan skilning á viðkomandi efni og hagnýta þekkingu sem nýtist þér í starfi strax eftir námskeiðið.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: namskeid (at) miracle.is