Miracle byggir á afar einfaldri viðskiptahugmynd. Við leggjum okkur fram um að bjóða viðskiptavinum okkar bestu fáanlegu þjónustu og aðgengi að færustu sérfræðingum á sviði gagnagrunnstækni sem völ er á á Íslandi. Við erum óháðir framleiðendum og getum því boðið viðskiptavinum okkar hlutlausa ráðgjöf, óháða hagsmunum framleiðenda hugbúnaðarins.
Miracle á Íslandi var stofnað í félagi við Miracle AS í Danmörku, sem hefur getið sér orð sem eitt öflugasta sérfræðihús Danmerkur á sviði gagnagrunnstækni. Náið samstarf fyrirtækjanna veitir Miracle á Íslandi aðgengi að verðmætri þekkingu Miracle AS og gerir þjónustuvörur Miracle AS aðgengilegar fyrir íslenska markaðinn. Einnig tryggir samstarfið Miracle á Íslandi dýrmætt bakland hjá félögum okkar í Danmörku.
Hjá okkur starfa eingöngu reyndir starfsmenn sem að auki hafa skapað sér orð fyrir afburða frammistöðu. Starfsmönnum okkar bjóðum við krefjandi en um leið gefandi starfsumhverfi. Ögrandi verkefni og kröfuharðir viðskiptavinir tryggja að starfsmenn okkar verða ávallt meðal þeirra bestu í faginu. Við viljum aðeins allra besta fólkið og bjóðum viðskiptavinum okkar aðeins það besta.
Miracle vinnur með nokkrum fyrirtækjum sem að okkar mati skara fram úr á sínu sviði. Við erum samstarfsaðilar Oracle Corporation, Microsoft Corporation, Lumigent og Embarcadero.