Miracle er 6 ára gamalt ráðgjafafyrirtæki í upplýsingatækni. Fyrirtækið er mjög vel stætt og í eigu starfsmanna. Við ráðum því sjálf hvernig fyrirtækið okkar verður í framtíðinni, ekki bankar, lánadrottnar eða fagfjárfestar.

Miracle býður upp á skemmtilegan vinnustað þar sem er að finna stórfurðulegt fólk sem hefur það sameiginlegt að vera afburðaflinkt í sínu fagi. Við vinnum í flötu skipulagi þar sem allir taka þátt í að móta framtíð fyrirtækisins. Stefnan hjá okkur er að bjóða upp á fjölskylduvænt umhverfi þar sem tæknifólk fær að kljást við krefjandi og skemmtileg verkefni.

Vegna aukinna verkefna viljum við bæta úrvalsfólki í hópinn. Við leitum að þungavigtar sérfræðingum á eftirfarandi sviðum:
  • Öflugur gagnagrunns- & kerfisstjóri (DBA/SysAdmin)
  • Viðskiptagreining & vöruhús gagna (BI & DW)
  • Samþætting (Integration)

Fyrir öll störfin eru eftirfarandi kröfur gerðar:

  • Þú þarft háskólamenntun.
  • Þú hefur að minnsta kosti 10 ára reynslu í upplýsingatækni (ef þú ert undrabarn með minna en 10 ára reynslu máttu hafa samband).
  • Þú hefur mikinn tæknilegan metnað og ætlar að halda áfram að vera meðal þeirra bestu í þínu fagi.
  • Þú ert hjálpsamur/söm og hefur ríka þjónustulund, enda skiptir engu máli hvað þú ert flink(ur) ef enginn nennir að vinna með þér.

Umsóknir sendist á: 42@miracle.is