Miracle á Íslandi er öflugt fyrirtæki á sviði gagnagrunnstækni- og lausna. Við bjóðum viðskiptavinum okkar aðgang að landsliði gagnagrunnssérfræðinga í Oracle og Microsoft SQL Server. Við erum óháðir framleiðendum hug- og vélbúnaðar og getum því boðið viðskiptavinum okkar hlutlausa ráðgjöf.

Starfsmenn Miracle á íslandi eru eftirfarandi:

Benjamín Sigursteinsson

16 ára reynsla í gagnagrunnum.  Þar af 11 ár í Oracle bæði hjá S.Þ. í New York og Róm og svo hér heima í Oracle, MSSQL og Rdb.  Sérhæfing í vöruhúsum gagna, viðskiptagreiningu og flóknum gagnagrunnum - þykir einn helsti sérfræðingur landsins í þessum greinum. Benni er liðtækur skokkari og kann eitt og annað fyrir sér í fótbolta. Hann er hins vegar ekki liðtækur í handbolta.

Birkir Björnsson

Birkir hefur um 11 ára reynslu af gagnagrunnum og rekstri tölvukerfa. Hann hefur starfað hjá Nýherja,Títan og Íslandssíma sem kerfistjóri. Síðastliðin ár hefur hann eingöngu starfað við þjónustu og rekstur Oracle og MS-SQL Server gagnagrunna.

Bjarni Lúðvíksson

Bjarni hefur um 13 ára reynslu af rekstri tölvukerfa og vefhugbúnaðar.  Hann stofnaði hugbúnaðarfyrirtækið Innn hf. sem hann starfaði hjá í 7 ár.

Guðmundur Arnar Ástvaldsson

Arnar starfaði hjá OZ í tæplega átta ár og hefur mikla reynslu af forritun og verkefnastjórnun. Arnar hefur ágæta reynslu af forritun fyrir símtæki og hefur meðal annars unnið í verkefnum fyrir mörg af stærstu símafyrirtækjum í heimi.

Gunnar Bjarnason

Gunnar er með Msc.gráðu í tölvunarfræði og var þar með afkastastillingar gagnagrunna sem sérsvið.  Gunnar þótti liðtækur tæknimaður á yngri árum en undanfarin ár hefur hann meira hneigst í átt að stjórnun og rekstri. Farið hefur fé betra.

Jón Ásgeir Einarsson

Jón hefur starfað með gagnagrunna í þrjá áratugi (og er með örin til að sanna það); Oracle, MS-SQL Server og Adabas hafa fylgt honum eins og skugginn í gegnum árin. Sérþekking á klasauppsetningum og failover lausnum svo sem Oracle Real Application Cluster.

Kristján R. Hjartarson

Kristján er með 12 ára reynsla af gagnagrunnum og gagnagrunnsforritun. Sérþekking á Oracle og MS-SQL Server fyrir Concorde auk sérþekkingar á vöruhúsum, gömlum Hiluxum og viðskiptagreiningu.

Sigríður K. Þórisdóttir

...

Sigurður Gunnar Sveinsson

Siggi Gunni er með 12 ára reynsla af gagnagrunnum, Oracle og MS-SQL Server og hefur sérhæft sig í afkastatengdum málum og klasauppsetningum og resktri. Siggi uppfyllir allar okkar kröfur um tæknilega getu, hæfileika, hárþykkt og lit.

Sigþór Samúelsson

Óhæfur tæknimaður og hefur fátt sér til málsbóta annað en að mæta snemma.

Sveinn Sveinsson

Sveinn hefur 22 ára reynslu í upplýsingatækni. Sveinn er með M.S. frá Háskóla Íslands og M.A. í tölvunarfræði frá Boston University.  Hann hefur mikla reynslu af rekstri Unix stýrikerfa og hefur verið talinn einn helsti sérfræðingur Íslands í Informix og Oracle. Sveinn byrjaði feril sinn á Landakotsspítala og fór þaðan yfir í Streng þar sem hann vann í 12 ár og núna síðast hjá Teymi áður en hann gekk til liðs við Miracle.

Yngvi Þór Sigurjónsson

Yngvi hefur langa og mikla reynslu af gagnagrunnum. Hefur starfað m.a. við rekstur og þjónustu á Oracle í mörg herrans ár. Yngvi er sérlega lipur Oracle maður og kann öll trixin í bókinni. Yngvi er í þessu af lífi og sál og þekkir Oracle eins og handarbakið á sér.

Þröstur Jónasson

Spörri hefur unnið við rekstur tölvukerfa og gagnagrunna í meira en tólf ár. Hann hefur lengi reynt að fá Navision til að virka en undanfarin ár hefur honum tekist nokkuð vel til.

Náið samstarf er milli okkar og danskra félaga okkar og getum við því boðið viðskiptavinum okkar aðgang að sérfræðingum frá Miracle AS, hvort sem er ”on site”, eða í gegnum nettengingu.