Þá hefur Miracle loksins ákveðið að opinbera námskeiðin sem haldin verða í
haust.  Óhætt er að segja að þau séu í anda Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar
sem þau eru ekki aðeins á sama verði og í fyrra heldur leggja þau einnig
áherslu á notagildi og gæði.

Við leggjum áherslu á kennslu í SQL fyrir bæði Oracle og Microsoft
gagnagrunna og ekki síður á góð námskeið í Microsoft Business Intelligence.

Svo er það bónusinn fyrir þá sem enn eiga eitthvað inni. Það er nefnilega
hægt að nota Microsoft Vouchera sem greiðslu fyrir Microsoft námskeiðin.

Við minnum á að þetta er kennt af færustu sérfræðingum Miracle, enda eigum
við enga aðra sérfræðinga.

Ef þú ert ekki sáttur eftir fyrsta daginn þá er málið ekki flóknara en svo
að við endurgreiðum þér 100%.

Hlökkum til að hitta þig!